3 egg
1 dl súrmjólk
1 dl. olía
1 tes. vanillusykur
2,5 dl hveiti
1 tes. lyftiduft
1/4 tes salt
1/2 tes. kanill
2,5 dl. rifnar gulrætur
1,2 dl. valhnetur
1,2 dl. kókosmjöl
Þeytið egg og sykur vel saman. Bætið svo súrmjólk, olíu, og vanillusykri útí. Blandið hveiti, lyftidufti, salti og kanil í skál og bætið svo við eggjablönduna. Hrærið vel. hellið því næst gulrótum valhnetum og kókos útí, setjið í hringlaga smelluform (eða eitthvað annað mér finnst hún verða óþarflega þykk í einu formi) og geri þá nokkrar muffinskökur... Kakan er bökuð við 175 gráður í ca. 30 - 40 mín fer eftir ofnum fylgjast bara með. Þegar kakan er komin úr ofninum er sýrópinu hellt yfir kökuna. Kælið og setjið kremið á. Það er frábært að eiga kökur í frysti og taka út þegar gesti ber að garði(eða heimilsfólk langar í ) og búa til krem og setja á...(hef ekki fryst með kremi)
Sýróp.
1,2 dl sykur
0,6 dl. súrmjólk
0,6 dl smjör
1/2 msk. sýróp
1/4 tes lyftiduft
1/2 tes. vanillusykur
Setjið sykur, smjör,sýróp, og lyftiduft í pott og hitið að suðu. Látið malla í 4 mín á meðalhita. Takið af hellunni og setjið vanillusykurinn saman við.
Krem.
125 gr rjómaostur
0,6 dl. smjör (held að þetta sé ca 100 gr)
225 flórsykur
1/2 tes. vanillusykur
Öllu blandað saman hrærið þangað til kremið er orðið létt og gott.
Ég er ekki mjög nákvæm með mælieiningarnar og það hefur alltaf verið í lagi.
Þarna hef ég bætt við rauðum matarlit :) |
Engin ummæli:
Skrifa ummæli
Ath: Aðeins meðlimir bloggsins geta birt ummæli.