miðvikudagur, 25. maí 2016

Glassúrterta

Glassúrterta

1 kg hveiti
450 gr sykur
1 stk smjörlíki
3 tes. lyftiduft
1 tes. natron
3 egg
mjólk ef þarf

Hnoðað deig..úr þessari uppskrift nást leikandi 4 tertur þrjár hæðir hver eða skipta deiginu og gera vínarbrauð úr helmingnum. Inní kökurnar set ég hindberjasultu í volgar kökurnar eða jafnvel heitar ofaná þetta set ég bleikan glassúr og best er að gera þær daginn áður en maður ætlar að borða...og ef ég geri vínarbrauð þá set ég rabarbarasultu inní og súkkulaðikrem ofáná.

Bleikur glassúr.
Flórsykur
og soðið heitt vatn( lítið í einu)

Brúnt krem.
Flórsykur
kakó
vanilludropar
heitt kaffi(passa að setja mjög lítið í einu)
Glassútertan fremst á mynd


Engin ummæli:

Skrifa ummæli

Ath: Aðeins meðlimir bloggsins geta birt ummæli.