miðvikudagur, 25. maí 2016
Brauð í ýmsum útgáfum
1 pk. ger
2 msk sykur
1 tes. salt
2 msk. olía
Þetta er uppskriftin en ég slurka nú oftast og gengur vel. Oft hnoða ég þetta með króknum á hrærivélinni og svo er líka bara fljótlegt að hnoða þetta saman í skál. Látið hefast í 1-2 tíma eftir hvað manni liggur á....síðan set ég smjörpappír á plötu og set vel að olíu á og strái svo maldonsalti yfir og jafnvel hvítlaukskryddi eða bara hvítlauksolíu..síðan set ég brauðið á pappírinn set svo olíu ofaná brauðið og salta/krydda vel. Þetta baka ég á ca. 190 í 20 mín.
Brauðið á myndunum eru allt úr þessu deigi
![]() | |
Svona lítur þetta út óbakað |
![]() |
Svo eru það bollur með kúmeni |
Marsterta
4 dl. púðursykur
Eggjahvítur stífþeyttar og púðursykurinn settur samanvið bakað í 70 mín á ca. 140 gráðum
Inní fer ca. 1/2 l. þeyttur rjómi og gott að brytja 2-3 mars (lítil) og setja inní en ekki nauðsynlegt.
Krem.
5 eggjarauður
4 msk. sykur
Þetta er hrært vel saman, 2-3 mars brædd(í smá rjóma) og sett útí
![]() |
Marsterta |
Skúffukaka
250 gr. smjörlíki
2 1/2 kanna sykur
3 egg
1 tappi vanilludropar
3 1/2 kanna hveiti
1 1/2 tes. lyftiduft
1 tes. natron
1/2 tes. salt
3 msk. kakó
1 1/2 glas súrmjólk
1/2 glas kaffi(lagað)
Hrært á hefðbundin hátt smjörlíki og sykur, síðan egg, þurrefni, og vökvi. Þetta passar í góða skúffu eða 3-4 hringlótt form. stundum geri ég hálfa uppskrift og það passar í 2 hringlaga form og set í eina tveggjalaga tertu.
Krem.
1 1/2 pakki flórsykur
2 egg
ca 100 gr. smjörlíki
vanilludropar
heitt kaffi(passa að setja ekki of mikið í einu)
þetta er svolítið mikið krem en við viljum hafa mikið:)

Þarna er skúffukakan í tertu og svona er kremið. |
Gulrótakaka
2,5 dl. sykur
3 egg
1 dl súrmjólk
1 dl. olía
1 tes. vanillusykur
2,5 dl hveiti
1 tes. lyftiduft
1/4 tes salt
1/2 tes. kanill
2,5 dl. rifnar gulrætur
1,2 dl. valhnetur
1,2 dl. kókosmjöl
Þeytið egg og sykur vel saman. Bætið svo súrmjólk, olíu, og vanillusykri útí. Blandið hveiti, lyftidufti, salti og kanil í skál og bætið svo við eggjablönduna. Hrærið vel. hellið því næst gulrótum valhnetum og kókos útí, setjið í hringlaga smelluform (eða eitthvað annað mér finnst hún verða óþarflega þykk í einu formi) og geri þá nokkrar muffinskökur... Kakan er bökuð við 175 gráður í ca. 30 - 40 mín fer eftir ofnum fylgjast bara með. Þegar kakan er komin úr ofninum er sýrópinu hellt yfir kökuna. Kælið og setjið kremið á. Það er frábært að eiga kökur í frysti og taka út þegar gesti ber að garði(eða heimilsfólk langar í ) og búa til krem og setja á...(hef ekki fryst með kremi)
Sýróp.
1,2 dl sykur
0,6 dl. súrmjólk
0,6 dl smjör
1/2 msk. sýróp
1/4 tes lyftiduft
1/2 tes. vanillusykur
Setjið sykur, smjör,sýróp, og lyftiduft í pott og hitið að suðu. Látið malla í 4 mín á meðalhita. Takið af hellunni og setjið vanillusykurinn saman við.
Krem.
125 gr rjómaostur
0,6 dl. smjör (held að þetta sé ca 100 gr)
225 flórsykur
1/2 tes. vanillusykur
Öllu blandað saman hrærið þangað til kremið er orðið létt og gott.
Ég er ekki mjög nákvæm með mælieiningarnar og það hefur alltaf verið í lagi.

Þarna hef ég bætt við rauðum matarlit :) |
Glassúrterta
Glassúrterta
1 kg hveiti
450 gr sykur
1 stk smjörlíki
3 tes. lyftiduft
1 tes. natron
3 egg
mjólk ef þarf
Hnoðað deig..úr þessari uppskrift nást leikandi 4 tertur þrjár hæðir hver eða skipta deiginu og gera vínarbrauð úr helmingnum. Inní kökurnar set ég hindberjasultu í volgar kökurnar eða jafnvel heitar ofaná þetta set ég bleikan glassúr og best er að gera þær daginn áður en maður ætlar að borða...og ef ég geri vínarbrauð þá set ég rabarbarasultu inní og súkkulaðikrem ofáná.
Bleikur glassúr.
Flórsykur
og soðið heitt vatn( lítið í einu)
Brúnt krem.
Flórsykur
kakó
vanilludropar
heitt kaffi(passa að setja mjög lítið í einu)

Glassútertan fremst á mynd |
Kókosbolluterta
Marengs í Kókosbollutertu
4 eggjahvítur
200 gr. sykur
1 tes. lyftiduft
rice krispies slatti
Bakað á hefðbundin hátt....
Marengsinn er brotin samanvið 1/2 l. rjóma og sett í fat eða skál 6 kókosbollur sneiddar ofaná síðan eru sett ber að einhveju tagi ofaná og brætt súkkulaði ef vill.

Marengsterta
Marengsterta
4 eggjahvítur2 dl. sykur
1 dl. púðursykur
Rice Krispies
Stífþeyta eggjahvítur og setja svo sykur útí að lokum er rice krispies sett útí og hrært með sleif bakað við lágan hita í ca 2 tíma.
Inní setti ég 1/2 l. rjóma og fersk jarðarber. Ofaná bræddi ég rollo og nokkrar fílakaramellur í rjóma
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)